Kokkur ársins 2026 í beinu streymi

Forkeppnin var afar jöfn og spennandi og tryggðu fimm keppendur sér sæti í úrslitum Kokk ársins sem fara fram í dag. Keppnin er haldin í 30. sinn, en hún var fyrst haldin árið 1994 og hefur síðan verið einn virtasti vettvangur matreiðslumanna landsins.


Keppendurnir sem keppa til úrslita eru:

• Ísak Aron Jóhannsson – Múlakaffi

• Guðmundur Halldór Bender – Mister Iceland

• Hugi Rafn Stefánsson – Black Sand Hotel

• Wiktor Pálsson – Nómy veisluþjónusta

• Hinrik Örn Halldórsson – Lóla restaurant


Keppnin fer fram í IKEA í dag og verður sýnd í beinni útsendingu á mbl.is.


Tímaplan keppninnar:

Ísak Aron Jóhannsson

– forréttur 14:00 | aðalréttur 14:30 | eftirréttur 15:00

Hugi Rafn Stefánsson

– forréttur 14:05 | aðalréttur 14:35 | eftirréttur 15:05

Hinrik Örn Halldórsson

– forréttur 14:10 | aðalréttur 14:40 | eftirréttur 15:10

Wiktor Pálsson

– forréttur 14:15 | aðalréttur 14:45 | eftirréttur 15:15

Guðmundur Halldór Bender

– forréttur 14:20 | aðalréttur 14:50 | eftirréttur 15:20


Verslun IKEA opnar kl. 11 og hvetjum við alla til að koma, fylgjast með og upplifa stemninguna á staðnum.


Á síðustu tveimur dögum hefur einnig verið keppt í Sjávarréttakeppni Nora og Grænmetiskokki ársins. Úrslit þeirra keppna ásamt úrslit í Kokk ársins verða kynnt í kvöld á NASA Hótel Parliament, þar sem húsið opnar kl. 18:00.


Spennan er mikil og ljóst að hér mætast nokkrir af fremstu matreiðslumönnum landsins í baráttu um titilinn Kokk ársins.


Hægt verður að fylgjast með keppninni í beinu streymi hér:



Eftir Andreas Jacobsen 19. maí 2026
Árni Þór Arnórsson tekur við formennsku Chefs Without Borders
Eftir Andreas Jacobsen 11. maí 2026
Cordon Bleu afhent á árshátíð KM
Eftir Andreas Jacobsen 11. maí 2026
Aðalfundur Klúbbs matreiðslumeistara 2026
Eftir Þórir Erlingsson 18. apríl 2026
Bæði lið Íslands á palli í Norrænu Nemakeppninni.
Eftir Andreas Jacobsen 15. apríl 2026
Norræna nemakeppnin 2026
Eftir Andreas Jacobsen 30. mars 2026
Sérstök viðurkenning til Bjarka Hilmarssonar á lokahófi Kokks ársins ost
Eftir Þórir Erlingsson 29. mars 2026
Framúrskarandi fagmennska í forgrunni á keppnishelgi í IKEA
Eftir Þórir Erlingsson 21. mars 2026
Minning um Birgi Rút Pálsson
Eftir Þórir Erlingsson 20. mars 2026
Dregið um keppnisdaga – íslensku liðin keppa bæði á fyrsta keppnisdegi
Eftir Andreas Jacobsen 27. febrúar 2026
Keppnin um Kokk ársins og Grænmetiskokk ársins 2026
Sýna fleiri fréttir