Framúrskarandi fagmennska í forgrunni á keppnishelgi í IKEA

Klúbbur matreiðslumeistara stóð um helgina fyrir keppnunum Kokkur ársins, Grænmetiskokkur ársins og Sjávarréttakeppni NORA Seafood í húsakynnum IKEA. Keppnirnar heppnuðust afar vel og skapaði IKEA glæsilega og faglega umgjörð þar sem gestir fengu tækifæri til að fylgjast náið með.
Kokkur ársins haldinn í þrítugasta sinn
Keppnin um Kokk ársins var haldin í þrítugasta sinn í ár og markar það mikilvæg tímamót í íslenskri matreiðslu. Frá upphafi hefur Bjarki Hilmarsson, yfirkokkur á Hótel Geysi, haft umsjón með keppninni og gegnt lykilhlutverki í þróun hennar og uppbyggingu.
Ísak Aron hlaut titilinn Kokkur ársins 2026
Í úrslitum um Kokk ársins kepptu Ísak Aron Jóhannsson frá Múlakaffi, Guðmundur Halldór Bender frá Mister Iceland, Hugi Rafn Stefánsson frá Black Sand Hótel, Wiktor Pálsson frá Nomy veisluþjónustu og Hinrik Örn Halldórsson frá Lóla Restaurant. Að lokinni keppni stóð Ísak Aron Jóhannsson uppi sem sigurvegari og hlaut titilinn Kokkur ársins 2026. Í öðru sæti varð Hugi Rafn Stefánsson og í þriðja sæti Wiktor Pálsson.
Þorlákur Sigurðsson Grænmetiskokkur ársins
Í keppninni um Grænmetiskokk ársins kepptu Bjarni Ingi Sigurgíslason frá Fröken Reykjavík, Rúnar Atli Wiium frá Fiskfélaginu, Þorlákur Sigurðsson frá Lóla, Monica Daniela Panait frá Hótel Geysi og Einar Arnbjargarsson. Sigurvegari var Þorlákur Sigurðsson, í öðru sæti varð Bjarni Ingi Sigurgíslason og í þriðja sæti Rúnar Atli Wiium.
Alexander Brynjarsson sigraði í nýrri keppni
Í Sjávarréttakeppni NORA Seafood bar Alexander Brynjarsson frá Hótel Geysi sigur úr býtum. Í öðru sæti varð Aron Elvar Bjarkason, einnig frá Hótel Geysi, og í þriðja sæti Kaayam Gurung frá Monkeys. Aðrir keppendur voru Claudio Sohan frá Hótel Selfoss og Anna Morris.
Aðstoðarmaður keppninnar valinn í fyrsta skipti
Nemar í matreiðslu frá Menntaskólanum í Kópavogi aðstoðuðu við keppnina í ár eins og undanfarin ár bæði sem aðstoðarmenn keppenda sem og á baksvæði keppninnar. Í fyrsta skipti í sögu keppninnar var valin aðstoðarmaður keppninnar en eldhúsdómarar völdu þann nema sem þótti standa sig best í eldhúsinu. Guðlaug A Snorradóttir Cruz var valin aðstoðarmaður keppninnar en Guðlaug er nemi í grunndeild MK.
Mikilvægur vettvangur fyrir íslenskt matreiðslufólk
„Það er einstaklega ánægjulegt að sjá þann mikla metnað og fagmennsku sem keppendur sýna ár eftir ár. Keppnin er mikilvægur vettvangur fyrir íslenskt matreiðslufólk til að þróa sig áfram og sýna hvað í þeim býr. Umgjörðin í IKEA var til fyrirmyndar og þátttakan sýnir að greinin er í miklum blóma“ segir Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara.
Bjarki Hilmarsson segir keppnina hafa þróast mikið í gegnum árin: „Það er ótrúlegt að sjá hversu langt þessi keppni hefur komið á þessum 30 árum. Gæðin aukast með hverju árinu og keppendur leggja sífellt meira í undirbúning og framsetningu. Það er ljóst að framtíð íslenskrar matreiðslu er björt.“
Sterk staða íslenskrar matreiðslu staðfest á ný
Keppnishelgin staðfesti enn á ný þann mikla styrk, fagmennsku og metnað sem einkennir íslenskt matreiðslufólk og mikilvægi slíkra viðburða fyrir þróun greinarinnar.




















