Aðalfundur Klúbbs matreiðslumeistara 2026

Aðalfundur Klúbbs matreiðslumeistara haldinn á Hótel Natur á Svalbarðsströnd 9. maí
Aðalfundur Klúbbs matreiðslumeistara fór fram á Hótel Natur á Svalbarðsströnd laugardaginn 9. maí síðastliðinn. Fundurinn var vel sóttur og einkenndist af góðum starfsanda, málefnalegum umræðum og skýrri sýn á áframhaldandi uppbyggingu félagsins. Á fundinum kom skýrt fram sá styrkur sem felst í öflugu fagfélagi matreiðslumanna, þar sem samvinna, fagmennska og metnaður til framþróunar eru í forgrunni.
Klúbbur matreiðslumeistara gegnir lykilhlutverki í íslensku fagumhverfi matreiðslu. Félagið hefur um áratuga skeið verið vettvangur þróunar, fræðslu og samvinnu fagfólks, auk þess að styðja við öflugt keppnisstarf, þar á meðal starfsemi Kokkalandsliðsins. Þá hefur klúbburinn lagt ríka áherslu á nýliðun í greininni, eflingu faglegs stolts og kynningu á íslenskri matargerð bæði innanlands og á alþjóðavettvangi.
Á aðalfundinum voru hefðbundin aðalfundarstörf til umræðu, þar sem farið var yfir starfsemi liðins árs, fjárhag og framtíðarsýn. Umræður voru líflegar og uppbyggilegar, og þátttakendur sýndu ríkan vilja til að halda áfram að efla starf félagsins og styrkja stöðu þess sem leiðandi afl innan íslenskrar matreiðslu.
Stjórnarkosningar
Eitt af meginviðfangsefnum fundarins var stjórnarkjör, þar sem kosið var í deildir, nefndir og framkvæmdaráð félagsins í samræmi við lög þess.
Deildir Klúbbs matreiðslumeistara
Deildir innan félagsins kjósa sér sjálfar formenn og ritara á síðasta deildarfundi fyrir aðalfund. Aðalfundur staðfestir kjör þeirra.
Eftirfarandi voru staðfest í embætti fyrir tímabilið 2026–2027:
KM Reykjavík
Formaður: Árni Þór Arnórsson
Ritari: Ingibjörg H. Ingólfsdóttir
KM Norðurland
Formaður: Júlía Skarphéðinsdóttir
Ritari: Hallgrímur Friðrik Sigurðarson
KM Suðurland
Formaður: Bjartmar Pálmason
Ritari: Sölvi B. Hilmarsson
KM Konditorar 2026–2027
Formaður: Birnir S. Hauksson
Ritari: Jón Ingi Ólafsson
Nefndir félagsins
Formenn allra nefnda sitja í aðalstjórn, nema í þeim nefndum sem aðalstjórn skipar. Formenn og ritarar nefnda eru kjörnir á aðalfundi til tveggja ára í senn.
Keppnis- og dómgæslunefnd 2025–2027
Formaður: Bjarki I. Hilmarsson
Ritari: Rafn Heiðar Ingólfsson
Nefnd um hátíðarkvöldverð 2025–2027
Formaður: Jón Guðni Þórarinsson
Ritari: Arnar Darri Bjarnason
Viðburðarnefnd 2026–2028
Formaður: Kristján Magnússon
Ritari: Magnús Örn Guðmarsson
Nýliðunarnefnd 2026–2028
Formaður: Guðlaugur M. Ingibjörnsson
Ritari: Máni Þórðarson
Að auki mun stjórn félagsins skipa í Orðu- og laganefnd og Jafnréttisnefnd að loknum aðalfundi.
Framkvæmdaráð Klúbbs matreiðslumeistara
Framkvæmdaráð félagsins skipa forseti, varaforseti og gjaldkeri. Ráðið situr í stjórn og er kosið í heild sinni á aðalfundi til tveggja ára.
Eftirfarandi voru kjörnir fyrir tímabilið 2026–2028:
Þórir Erlingsson, forseti
Jóhann Sveinsson, varaforseti
Andreas Jacobsen, gjaldkeri
Fundurinn fór fram með skipulögðum hætti og endurspeglaði þann metnað, fagmennsku og samstöðu sem einkennir Klúbb matreiðslumeistara og starf hans til framtíðar.











