Bæði lið Íslands á palli í Norrænu

Nemakeppninni.


Bæði lið Íslands í norrænu nemakeppninni komust á pall að þessu sinni en keppendur Íslands komu vel undirbúnir til leiks, sem skilaði sér í því að bæði liðin í framreiðslu og matreiðslu unnu til bronsverðlauna. Keppnin var gríðarlega hörð í þetta skiptið en Finnar sigruðu í framreiðslu og Danir sigruðu í matreiðslu.


Keppendur fyrir íslandshönd voru Aron Fannar Þrastarson og Hákon Orri Stefánsson í matreiðslu en Aron starfar hjá Nomy veisluþjónustu og Lóla Restaurant en Hákon starfar hjá Fröken Reykjavík, báðir stefna á að klára sveinspróf í matreiðslu nú í maí.

Í framreiðslu kepptu Árný Lind Berglindardóttir, en hún starfar á veitingahúsinu Kol, og Freyja Dröfn Bjarnadóttir, sem starfar á veitingahúsinu OTO en þær eins og strákarnir stefna á að klára sveinspróf nú í maí mánuði


Um keppnina

Keppnin í ár var sú 45. í röðinni en Ísland hefur tekið þátt síðan 1986, margir af bestu matreiðslumeisturum Norðurlandanna hafa hafið sinn feril í þessari keppni. Keppendur koma frá norðurlöndunum fimm en öll löndin senda tvo framreiðslunema og tvo matreiðslunema studda af liðstjórum. Forkeppni á Íslandi fór fram í Menntaskólanum í Kópavogi í nóvember síðastliðnum. Keppnin á Íslandi er haldin á vegum Samtaka ferðaþjónustunnar og Matvís en Klúbbur matreiðslumeistara sér um framkvæmdina fyrir þeirra hönd.

Undir þema ársins, framtíðargestrisni, gerðu matreiðslunemarnir nútímalega túlkun á kálbögglum og sömdu fjögra rétta matseðil byggðan á leyndum hráefnum úr mystery basket. Framreiðslunemarnir kepptu í þjónustu, þar sem fram var borin fimm rétta máltíð ásamt vínpörun, þar sem eftirétturinn var eldsteiktur fram í sal.

 

Sigurvegarar

MATREIÐSLA

🥇 1. sæti  — Danmörk

🥈 2. sæti — Svíþjóð

🥉 3. sæti — Ísland

FRAMREIÐSLA

🥇 1. sæti — Finnland

🥈 2. sæti — Danmörk

🥉 3. sæti — Ísland

Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1992 – sjötta ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1991 – fimmta ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1990 – fjórða ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1989 – þriðja ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1988 – annað ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 23. september 2026
Norræna nemakeppnin 1987 – upphaf íslenskrar þátttöku
Eftir Andreas Jacobsen • 19. maí 2026
Árni Þór Arnórsson tekur við formennsku Chefs Without Borders
Eftir Andreas Jacobsen • 11. maí 2026
Cordon Bleu afhent á árshátíð KM
Eftir Andreas Jacobsen • 11. maí 2026
Aðalfundur Klúbbs matreiðslumeistara 2026
Eftir Andreas Jacobsen • 15. apríl 2026
Norræna nemakeppnin 2026
Sýna fleiri fréttir