Skilmálar

Almennir skilmálar

Klúbbur matreiðslumeistara á og rekur Kokkalandsliðið.


Kokkalandsliðið og Klúbbur matreiðslumeistara bera virðingu fyrir þér og persónuupplýsingum þínum. Vinnsla upplýsinga sem þú lætur okkur í té er í samræmi við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr.90/2018. Með því að styrkja starfið samþykkir þú að klúbburinn megi eiga í samskiptum við þig en þó aðeins á grundvelli þess sambands sem stofnað er til með skráningunni. Nánar má kynna sér stefnu Kokkalandsliðsins og Klúbbs matreiðslumeistara um vinnslu persónuupplýsinga hér.


Með því að gefa upp greiðslukorta- eða bankaupplýsingar veitir þú klúbbnum heimild til að skuldfæra þá styrktar upphæð sem þú hefur kosið af greiðslukorti.


Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Klúbbs matreiðslumeistara á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.


Hafir þú af einhverju ástæðum athugasemdir við skilmálana eða óskar eftir frekari upplýsingum er þér sömuleiðis velkomið að hafa samband við klúbbinn í gegnum tölvupóst eða síma.