Norræna nemakeppnin 1988 – annað ár Íslands í keppninni

Norræna nemakeppnin 1988 – annað ár Íslands í keppni
Árið 1988 tók Ísland þátt í Norrænu nemakeppninni í matreiðslu og framreiðslu annað árið í röð. Með þátttökunni var haldið áfram að byggja upp reynslu íslenskra nema á norrænum vettvangi og skapa tengsl við fagfólk og nema frá hinum Norðurlöndunum.
Keppendur Íslands í matreiðslu voru Linda Wessman og Sveinn Jónsson, en þjálfari þeirra var Kristján Sæmundsson. Í framreiðslu keppti Óðinn Sörli Ágústsson ásamt öðrum íslenskum keppanda, en nafn hans hefur enn ekki tekist að staðfesta. Þjálfari í framreiðslu var Halldór Malmberg.
Norræna nemakeppnin hefur í gegnum tíðina gefið ungum fagmönnum tækifæri til að öðlast reynslu, takast á við krefjandi verkefni og kynnast faglegum vinnubrögðum kollega sinna á Norðurlöndunum. Þátttakan á þessum fyrstu árum lagði þannig sitt af mörkum til þeirrar löngu sögu sem íslenskir matreiðslu og framreiðslunemar eiga í keppninni.
Myndirnar sem fylgja eru frá keppninni árið 1988 og voru teknar af Kristjáni Sæmundssyni. Þær eru mikilvægar heimildir um íslenska þátttöku á þessum fyrstu árum og varðveita augnablik úr sögu keppninnar, fólksins og faganna. Vonandi vekja þær góðar minningar hjá þeim sem upplifðu þennan tíma og veita yngri kynslóðum innsýn í þá sögu sem byggt hefur verið á síðan.

















