Norræna nemakeppnin 1987 – upphaf íslenskrar þátttöku


Árið 1987 hófst langur og merkilegur kafli í íslenskri fagkeppnissögu þegar Ísland tók í fyrsta sinn þátt í Norrænu nemakeppninni í matreiðslu og framreiðslu.


Fyrstu íslensku keppendurnir í matreiðslu voru Úlfar Finnbjörnsson og Sæmundur Kristjánsson, en þjálfari þeirra var Kristján Sæmundsson. Í framreiðslu var Halldór Malmberg þjálfari íslensku keppendanna. Því miður hefur okkur enn ekki tekist að staðfesta nöfn þeirra sem kepptu í framreiðslu þetta fyrsta ár.


Þarna var lagður grunnur að þátttöku Íslands í keppninni, sem á næstu áratugum varð mikilvægur vettvangur fyrir unga matreiðslu og framreiðslunema til að reyna sig við jafnaldra sína frá hinum Norðurlöndunum, afla sér dýrmætrar reynslu og efla faglega færni sína.


Myndir frá keppninni árið 1987 tók Kristján Sæmundsson. Myndirnar eru skemmtileg heimild um þetta fyrsta ár íslenskrar þátttöku og gefa góða innsýn í keppnina og umgjörð hennar eins og hún var fyrir tæpum fjórum áratugum.

Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1992 – sjötta ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1991 – fimmta ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1990 – fjórða ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1989 – þriðja ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1988 – annað ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 19. maí 2026
Árni Þór Arnórsson tekur við formennsku Chefs Without Borders
Eftir Andreas Jacobsen • 11. maí 2026
Cordon Bleu afhent á árshátíð KM
Eftir Andreas Jacobsen • 11. maí 2026
Aðalfundur Klúbbs matreiðslumeistara 2026
Eftir Þórir Erlingsson • 18. apríl 2026
Bæði lið Íslands á palli í Norrænu Nemakeppninni.
Eftir Andreas Jacobsen • 15. apríl 2026
Norræna nemakeppnin 2026
Sýna fleiri fréttir