Dregið um keppnisdaga – íslensku liðin keppa bæði á fyrsta keppnisdegi

Nú hefur verið dregið um keppnisdaga fyrir heimsmeistarakeppnina í matreiðslu sem fram fer í Lúxemborg dagana 21.–25. nóvember 2026. Með drættinum liggur fyrir hvenær þjóðir stíga á svið í mismunandi greinum keppninnar.

Fyrst til að stíga inn í búrið í landsliðsflokki í Hot Kitchen er Kanada, en Sviss ríður á vaðið í Chef’s Table . Bæði íslensku liðin hefja keppni á fyrsta keppnisdegi. Junior-liðið keppir í Chef’s Table on Fire, þar sem Ísland verður þriðja liðið til að stíga inn í búrið . Landsliðið byrjar einnig á sama degi í Hot Kitchen og verður annað liðið til keppni þann dag .

Í landsliðsflokki (National Teams) keppir íslenska landsliðið í Hot Kitchen laugardaginn 21. nóvember, en síðan í Chef’s Table þriðjudaginn 24. nóvember .

Í junior landsliðsflokki keppir íslenska liðið í Chef’s Table on Fire laugardaginn 21. nóvember og síðan í Hot Kitchen mánudaginn 23. nóvember .

Dagarnir á milli keppnisgreina nýtast liðum vel til undirbúnings fyrir næsta keppnisdag, þar sem unnið er að skipulagi, æfingum og fínstillingu áður en aftur er stigið inn í búrið.

Heimsmeistarakeppnin í Lúxemborg er ein sú stærsta í heimi í matreiðslu og dregur að sér marga af fremstu kokkum heims. Drátturinn markar því mikilvægan áfanga í undirbúningi íslensku liðanna sem nú geta einbeitt sér að lokaundirbúningi fyrir keppnisdagana sína.

Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1992 – sjötta ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1991 – fimmta ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1990 – fjórða ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1989 – þriðja ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1988 – annað ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 23. september 2026
Norræna nemakeppnin 1987 – upphaf íslenskrar þátttöku
Eftir Andreas Jacobsen • 19. maí 2026
Árni Þór Arnórsson tekur við formennsku Chefs Without Borders
Eftir Andreas Jacobsen • 11. maí 2026
Cordon Bleu afhent á árshátíð KM
Eftir Andreas Jacobsen • 11. maí 2026
Aðalfundur Klúbbs matreiðslumeistara 2026
Eftir Þórir Erlingsson • 18. apríl 2026
Bæði lið Íslands á palli í Norrænu Nemakeppninni.
Sýna fleiri fréttir