Heimsþing matreiðslumanna fer fram í Singapore

Thomas A Gugler, forseti World chefs og Kristine Hartviksen fyrirverarndi forseti NKF

Tuttugasti október er alþjóðlegi kokkadagurinn en hann hefur verið haldin hátíðlegur víða um heim undanfarin ár. Að þessu sinni hefst eining heimsþing matreiðslumanna en það er haldið í Singapore næstu daga en því líkur þann 22. október. Á þinginu verður meðal annars kjörin nýr forseti en Thomas A. Gugler sem verið hefur verið forseti síðustu átta árinn lýkur sínu embætti á þinginu.  Kosið verður milli tveggja framboða sem bæði eru skipuð fimm matreiðslumönnum. Þau er leidd annars vegar af Andy Cuthbert, frá Dubai, Kristine Hartviksen fyrrverandi forseti norðurlandasamtaka matreiðslumanna er í hluti af framboði hans og hins vegar af  Manjit Gill frá Indlandi.  

Tveir fulltrúar Klúbbs matreiðslumeistara eru staddir á þinginu þeir Árni Þór Arnórsson og Þórir Erlingsson forseti KM.  Þeir eru þar í góðum félagsskap norðurlandana en norðurlöndin standa saman á þessum þingum svo eftir er tekið.


Þingið er haldið á Marina Bay Sand hótelinu, en hótelið og umhverfi þess er allt hið glæsilegasta. Laugardagskvöldið nítjánda október var fyrsti viðburður þingsins en þá var svokallaður „ísbrjótur.“ Veitingar voru glæsilegar og mikil gleði ríkti meðal þinggesta eins og alltaf þegar stór hópur af matreiðslumönnum koma saman. Þingið var svo sett kl. 09.00, þann tuttugusta október. Með fréttinni er nokkrar myndir frá ísbrjótinum og setningunni.

Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1992 – sjötta ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1991 – fimmta ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1990 – fjórða ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1989 – þriðja ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1988 – annað ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 23. september 2026
Norræna nemakeppnin 1987 – upphaf íslenskrar þátttöku
Eftir Andreas Jacobsen • 19. maí 2026
Árni Þór Arnórsson tekur við formennsku Chefs Without Borders
Eftir Andreas Jacobsen • 11. maí 2026
Cordon Bleu afhent á árshátíð KM
Eftir Andreas Jacobsen • 11. maí 2026
Aðalfundur Klúbbs matreiðslumeistara 2026
Eftir Þórir Erlingsson • 18. apríl 2026
Bæði lið Íslands á palli í Norrænu Nemakeppninni.
Sýna fleiri fréttir