Borðuðu áskoranirnar á ristuðu brauði
Borðuðu áskoranirnar á ristuðu brauði

Íslenska Kokkalandsliðið hóf keppni á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg í gær, laugardaginn 21. nóvember, og er óhætt að segja að fyrsti keppnisdagurinn hafi gengið vel, þrátt fyrir óvæntar áskoranir í keppniseldhúsinu.
Liðið keppti í heita eldhúsinu, sem nefnist „Restaurant of Nations“, þar sem mikið reynir á skipulag og samvinnu liðsmanna. Verkefnið felst í því að elda þriggja rétta kvöldverð fyrir 110 gesti.
Á meðan á keppni stóð komu upp vandamál tengd rafmagni í keppniseldhúsinu sem settu strik í reikninginn. Slíkar aðstæður geta reynst erfiðar þegar hver mínúta skiptir máli, en liðið tókst á við verkefnið af yfirvegun. Vegna vandamálanna ákváðu keppnishaldarar að seinka framreiðslu um 30 mínútur hjá öllum liðum og hófst hún því ekki fyrr en kl. 18.30 í stað 18.00.
Það er greinilegt að mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning liðsins undanfarna mánuði. Samheldnin er góð, skipulagið traust og keppendur vita nákvæmlega hvað þeir ætla sér. Þrátt fyrir þær áskoranir sem komu upp hélt liðið sínu striki og sýndi vel til hvers það er komið.
„Dagurinn gekk mjög vel og liðið stóð sig frábærlega þrátt fyrir ákveðna tæknilega erfiðleika hjá mótshöldurum,“ sagði Georg Arnar Halldórsson, þjálfari Kokkalandsliðsins, í lok keppnisdags.
„Það er alltaf sérstakt að fylgjast með liðinu okkar stíga inn í keppniseldhúsið eftir allan þann undirbúning sem liggur að baki. Við vissum að liðið væri vel undirbúið, en það er ekki síður mikilvægt að sjá hvernig það bregst við þegar hlutirnir ganga ekki alveg samkvæmt áætlun. Liðið sýndi mikinn styrk í dag og það er alveg ljóst að þetta lið er komið hingað til að ná árangri. Við ætlum okkur alla leið,“ segir Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara.
Íslenska Kokkalandsliðið hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð á alþjóðlegum vettvangi og náð frábærum árangri á stærstu matreiðslumótum heims. Metnaðurinn er ekki minni núna og stefnan er skýr – að berjast um sæti á verðlaunapalli.
Fyrsti keppnisdagurinn gefur góða ástæðu til bjartsýni, en liðið hlaut Gull fyrir framistöðu sína. Nú er horft fram á næstu verkefni með tilhlökkun. Úrslitin ráðast ekki fyrr en í lok mótsins, en eitt er víst: Íslenska Kokkalandsliðið er mætt til leiks af fullum krafti.
Myndir sem fylgja er teknar af Mumma Lú








































