Glæsilegur aðalfundur KM á Hótel Geysi

Aðalfundur KM var haldin á Hótel Geysi 18.maí síðasliðinn.

Miklar breytingar voru samþykktar á lögum félagsins og eru spennandi tímar framundan,

Formenn allra deilda og nefnda sitja framvegis í aðalstjórn og munu auk þess að stýra sínum deildum og nefndum taka allar meiriháttar ákvarðanir á reglulegum stjórnarfundum.


Svo kallað framkvæmdaráð var einnig kosið, en í því ráði situr forseti, varaforseti og gjaldkeri klúbbsins, en þeir sitja jafnframt í Aðalstjórn KM. Þórir Erlingsson var kjörinn forseti, Andreas Jacobsen gjaldkeri og  Jóhann Sveinsson varaforseti.


Þetta framkvæmdaráð mun sjá um "daglegan" rekstur klúbbsins sem er orðið ansi viðamikil, s.s. kokkalandsliðið, kokkur ársins, hátíðarkvöldverður, norðurlandasamstarf, alheimssamstarf, samskipti við bakhjarla og styrktaraðila og svo mætti lengi telja.

Rekstur klúbbsins er orðin það stór og viðamikil að erfitt er orðið að treysta eingöngu á þá fjölmörgu sjálfboðaliða sem í gegnum árin hafa unnið mikið og óeigingjarnt starf til að koma klúbbinn á þann stað sem hann er í dag.


Á næstu mánuðum mun framkvæmdaráðið fara á fullt í að tryggja nægilegt fjármagn fyrir starfsemi á öllum verkefnum klúbbsins sem eru í gangi auk þess að ýta úr vör fjölmörg nýjum verkefnum sem setið hafa á hakanum sökum manneklu.


Að sögn Þóris Erlingssonar forseta KM „ hefur það verið á dagskrá hjá stjórn KM síðast liðin áratug að færa starfsemi klúbbsins nær því sem við þekkjum á hinum norðurlöndunum, til þess þurfum við auk okkar frábæru sjálfboðaliða, fólk á skrifstofu sem getur einbeit sér að starfi klúbbsins og Kokklandsliðsins.“


Aðalstjórn og framkvæmdaráð Klúbbs matreiðslumeistara er sem hér segir:

Þórir Erlingsson, forseti

Jóhann Sveinson, vara forseti

Andreas Jacobsen, gjaldkeri

Júlía Skarphéðinsdóttir, formaður KM norðurland

Bjartmar Pálmason, formaður KM suðurland

Árni Þór Arnórsson, formaður KM Reykjavík

Kristján Magnússon, formaður Viðburðarnefndar

Bjarki I Hilmarsson, formaður Keppnis og dómgæslunefndar

Jón Ingi Ólafsson, formaður Nýliðunarnefndar

Jón Guðni Þórarinsson, formaður nefndar um Hátíðarkvöldverð


Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1992 – sjötta ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1991 – fimmta ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1990 – fjórða ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1989 – þriðja ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 24. september 2026
Norræna nemakeppnin 1988 – annað ár Íslands í keppninni
Eftir Andreas Jacobsen • 23. september 2026
Norræna nemakeppnin 1987 – upphaf íslenskrar þátttöku
Eftir Andreas Jacobsen • 19. maí 2026
Árni Þór Arnórsson tekur við formennsku Chefs Without Borders
Eftir Andreas Jacobsen • 11. maí 2026
Cordon Bleu afhent á árshátíð KM
Eftir Andreas Jacobsen • 11. maí 2026
Aðalfundur Klúbbs matreiðslumeistara 2026
Eftir Þórir Erlingsson • 18. apríl 2026
Bæði lið Íslands á palli í Norrænu Nemakeppninni.
Sýna fleiri fréttir