Kokkalandsliðið á leið á Ólympíuleikana

Allir fremstu matreiðslumenn heims koma saman í Stuttgart í Þýskalandi í byrjun febrúar 2024 og keppa um stærstu verðlaun keppnismatreiðslu. Íslenska kokkalandsliðið hefur æft stíft undanfarna mánuði í tengslum við keppni þessa og stefnir á verðlaunapall.


Snædís Xyza Mae Jónsdóttir landsliðsþjálfari segir ekkert annað en verðlaunasæti koma til greina. Hópurinn samanstandi af reynslumiklu keppnisfólki sem og einstaklingum sem eru að fara að keppa á sínu fyrsta stórmóti. Snædís hefur lengi verið tengd keppnismatreiðslu en hún tók að sér þjálfun liðsins fyrr á þessu ári. „Við ætlum okkur alla leið, þessi hópur er tilbúinn að leggja gríðarlega mikið á sig til að ná sem bestum árangri,“ segir Snædís og bendir á að æfingar fari fram aðra hverja viku, þrjá til fjóra daga í senn þar sem hver æfing er um tíu til fjórtán klukkustundir.


Hópurinn sem fer til Stuttgart er jafnframt leiddur af Ísaki Aroni Jóhannssyni fyrirliða en hann starfar hjá Zak veitingum og hefur mikla keppnisreynslu. Hann hefur verið í landsliðshópnum síðan 2019. Hann bar sigur úr býtum í keppninni um eftirrétt ársins 2022 og varð í fjórða sæti í keppninni um kokk ársins sama ár.


Aðrir í hópnum eru eftirfarandi: Hugi Rafn Stefánsson, sjálfstætt starfandi, hefur staðið uppi sem sigurvegari í Íslensku nemakeppninni í matreiðslu og verið aðstoðarmaður í Bocuse´dor keppninni.


Úlfar Örn Úlfarsson, sjálfstætt starfandi, hefur keppt í keppninni um Eftirréttur ársins og verið í Bocude´dor teyminu.


Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir, Fjallkonunni, hefur tekið þátt í keppninni Eftirréttur ársins og verið í kokklandsliðinu síðan 2021


Gabríel Kristinn Bjarnason, Dill, sigraði keppninna Nordic Young Chef 2021 hefur náð þriðja sæti í keppninni um Kokkur ársins og unnið Íslensku nemakeppnina ásamt því að vera aðstoðarmaður í Bocuse´dor


Kristín Birta Ólafsdóttir, Hótel Reykjavík Grand, fyrrum sigurvegari í Íslensku nemakeppninni og tekið þátt í keppninni um Eftirréttur ársins ásamt því að lenda í þriðja sæti á Íslandsmóti iðngreina.


Jafet Bergmann Viðarsson, Torfús Retreat, hefur tekið þátt í keppninni Eftirréttur ársins og Matreiðslunemi ársins.


Bjarki Snær Þorsteinsson, Lux veitingar, hefur tekið þátt í keppnunum um eftirrétt ársins, Matreiðslunemi ársins og Nordic Green Chef.


Ólöf Ólafsdóttir Head pastry chef – Monkeys, vann í keppninni um eftirrétt ársins 2021


María Shramko, Bakarameistaranum, er reynslubolti í keppnismatreiðslu en hún hefur unnið til fleiri en hundrað verðlauna á stórmótum og er viðurkenndur dómari.


Landsliðsþjálfarinn er einnig mikill reynslubolti í faginu en ásamt því að þjálfa landsliðið er Snædís Xyza Mae Jónsdóttir yfirkokkur á Ion Adventure. Hefur hún verið tengd landsliðinu síðan 2016 og var í landsliðshópnum sem náði þriðja sæti á síðustu Ólympíueikum, ásamt því meðal annars að keppa í Kokkur ársins, standa uppi sem sigurvegari í Eftirréttur ársins 2018 og vinna Artic Chef keppnina á Akureyri á þessu ári.


Ólympíuleikarnir verða settir 3. febrúar nk. og mun íslenska kokkalandsliðið keppa í tveimur greinum. Fyrri keppnisgreinin er „Chef´s table“, tólf manna 11 rétta matseðill og í hinni síðari þarf að afgreiða þriggja rétta matseðil fyrir 110 manns.


Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara, sem á og rekur kokkalandsliðið, segir að miklar væntingar séu gerðar til hópsins. „Hópurinn samanstendur af hæfileikaríku matreiðslufólki með frábæran þjálfara, sem á eftir að ná langt,“ segir Þórir og bætir við að ótrúlegt sé að fylgjast með eljunni og metnaði allra sem að koma, þar sem takmarkið sé að ná á verðlaunapall. „Að vera með landslið sem aftur og aftur sannar sig í að vera meðal þeirra bestu væri ekki hægt nema fyrir frábæran stuðning bakhjarla og styrktaraðila, þeir gera okkur þetta kleift,“ segir Þórir um leið og hann þakkar öllum þeim sem koma að starfi kokkalandsliðsins fyrir þeirra framlag.

Deila frétt

Eftir Þórir Erlingsson 06 Apr, 2024
Skráðu þig núna
Eftir Þórir Erlingsson 02 Apr, 2024
Áttu eftir að skrá þig?
Eftir Þórir Erlingsson 25 Mar, 2024
Kokkur- og Grænmetiskokkur ársins 2024
Eftir Þórir Erlingsson 18 Mar, 2024
"Nordic Chef" keppnin hefst í dag!
Eftir Árni Þór Árnason 09 Feb, 2024
Kokkalandsliðið fékk Gull fyrir heita matinn
Eftir Þórir Erlingsson 05 Feb, 2024
Bananar, styrktaraðili Kokkalandliðsins
Eftir Þórir Erlingsson 05 Feb, 2024
Garri áfram Bakhjarl Kokkalandliðsins
Fatið
Eftir Árni Þór Árnason 04 Feb, 2024
Chef´s table Stuttgart 2024
Eftir Þórir Erlingsson 04 Feb, 2024
Ekran er nýr styrktaraðili Kokkalandliðsins
MATA og Kokkalandsliðið
Eftir Þórir Erlingsson 02 Feb, 2024
MATA er nýr Bakhjarl Kokkalandsliðsins
Sýna fleiri fréttir
Share by: