Fagmennska og gæði
hefur verið okkar markmið í 50 ár
Kokkalandsliðið
Íslenska kokkalandsliðið er skipað af hæfileikaríkustu kokkum landsins.
Markmið liðsins er að vera sterk eining sem getur keppst við hæfileikaríkustu kokka í heiminum.
Eitt af markmiðum liðsins er að vera leiðandi kraftur í að styrkja fagmannlega matreiðslu, auka áhuga ungmenna á matreiðslu og vera fyrirmynd í íslenskri matarhefð. Allir meðlimir liðsins eru reyndir fagmenn.
Norræna nemakeppnin
Klúbbur matreiðslumeistara hefur nú tekið við skipulagningu og framkvæmd Norrænu nemakeppninnar, sem er ein elsta og virtasta fagkeppni matreiðslu- og þjónustunema á Norðurlöndum.
Keppnin á sér langa og merkilega sögu, hún var haldin í fyrsta sinn á Íslandi árið 1986, og þeir sem þar stóðu sig best kepptu í Svíþjóð árið 1987. Frá þeim tíma hefur keppnin verið haldin árlega í einhverju Norðurlandanna og fært saman ungt fólk sem deilir
ástríðu fyrir matargerð, þjónustu og fagmennsku.
Á næsta ári fagnar keppnin 45 ára afmæli, sem er mikilvægur áfangi í sögu norræns samstarfs í faggreinum gestrisni og matargerðar.
Keppnin sem hefur mótað framtíð fagsins
Í gegnum árin hafa margir af helstu matreiðslumönnum og færustu þjónurum Íslands tekið þátt og unnið til verðlauna í Norrænu nemakeppninni. Þeir hafa síðar orðið leiðandi kraftar í íslenskri matargerð, á veitingastöðum hér heima og erlendis, og keppt fyrir
Íslands hönd í öðrum alþjóðlegum keppnum.
Keppnin er mikilvægur vettvangur fyrir unga fagmenn til að öðlast reynslu, tengsl, innblástur og sýnir glöggt hversu sterkt og metnaðarfullt íslenska fagfólkið er innan norræna samstarfsins.
Framtíðin
Með því að taka við keppninni styrkir Klúbbur matreiðslumeistara tengslin á milli Norðurlandanna enn frekar og leggur áherslu á að efla menntun, fagþekkingu og samstarf ungs fólks í greininni.
Norræna nemakeppnin er ekki aðeins keppnis, hún er hátíð faglegrar færni, sköpunar og metnaðar sem heldur áfram að þróast og sameina framtíðarkynslóðir matreiðslumanna og þjónustufólks.

Klúbbur matreiðslumeistara
Klúbbur matreiðslumeistara (KM) er félagskapur matreiðslufólks á Íslandi, þar sem rætt er um mat, matargerð, hráefni, keppnir og hvað eina sem tengist mat og matreiðslu með einum eða öðrum hætti.
Klúbburinn var stofnaður í febrúar 1972 og hefur starfað óslitið síðan. Hann hét þá Klúbbur yfirmatreiðslumeistara en nafninu var breytt árið 1973 og fékk þá núverandi heiti. Starfið hefur verið öflugt og sem dæmi má nefna að haldnir hafa verið mánaðarlegir fundir í öll þessi ár.
Klúbbur matreiðslumeistara hóf snemma að senda mateiðslumenn í keppnir erlendis og tók fyrsta landslið á vegum klúbbsins þátt árið 1978. Íslenskir matreiðslumenn hafa keppt í öllum helstu keppnum síðan með frábærum árangri.
Klúbbur matreiðslumeistara tekur einnig þátt í alþjóðastarfi bæði sem félagi í Nordic Chef Assosion og World Chefs. Félagsmenn KM hafa í gegnum tíðina átt fulltrúa í stjórnum þessa félaga og sinnt ábyrgðarstöðum þar.
Allt starf KM hefur verið unnið af félagsmönnum í sjálfboðaliðavinnu, sama hvort um er að ræða keppnir, keppnishald eða annað starf.
Fréttir

Kokkur ársins
Keppnin um Kokk ársins hefur verið haldin árlega frá árinu 1994, fyrst undir nafninu Matreiðslumaður ársins en 2015 var nafninu breytt í Kokk ársins. Var keppnin haldin í Hörpunni fyrstu árin eftir breytingar en síðustu ár hefur hún verið haldin í Ikea.
Bjarki Hilmarsson matreiðslumeistari hefur frá upphafi haldið utan um keppninna með dyggum stuðningi margra matreiðslumanna. Fyrsti matreiðslumaðurinn ársins var Úlfar Finnbjörnsson, en þá var keppnin haldin í Íþróttahúsinu í Digranesi í samvinnu við matarsýningu sem þar var í gangi.
IKEA hefur verið dyggur styrktaraðili keppninar allt frá því að nafninu var breytt en IKEA hefur séð okkur fyrir keppniseldhúsum sem notuð hafa verið. Starfsfólk IKEA hefur lagt mikið á sig til að keppnin sé ávalt sem glæsulegust og þökkum við þeim kærlega fyrir þeirra framlag.