Kokkur ársins - Skráning
Kokkur ársins 2026
Keppnirnar um Kokk og Grænmetiskokk ársins verða haldnar í IKEA 26. til 29. mars næstkomandi.
Skráningarfrestur er til kl. 22:00 sunnudaginn 22. mars.
Þátttaka er frí og eru allir matreiðslumenn með sveinspróf ery hvattir til að taka þátt. Grunnhráefni í forkeppninni verða kynnt mánudaginn 23. mars kl. 14.00 hjá Mata, Sundagörðum 10 og í beinni útsendingu á miðlum Kokkalandsliðsins.
Forkeppnir í báðum keppnum fara fram fimmtudaginn 26. mars þar sem keppendur þurfa að skila mynd og uppskrift af réttinum ásamt því að matreiða rétt sinn, keppendur munu hafa 90 mínútur til að afgreiða réttinn en keppendur mega koma með hráefnið fulleldað ef þeim hugnast svo.
Úrslit í Grænmetiskokki ársins fara fram föstudaginn 27. mars, þar sem keppendur undirbúa og matreiða þriggja rétta matseðil.
Úrslit í keppninni um Kokk ársins fer svo fram sunnudaginn 29. mars. Þar undirbúa keppendur og matreiða þriggja rétta matseðil.
Nánari upplýsingar verða sendar á keppendur við skráningu.

















